Has been reviewed?
Has inline images?
Nei
Image
MIME Type
image/jpeg
File Size
1797948bytes
Width
3648px
Height
2736px
Date of photo
Fri, 10/02/2020 - 11:20

Fjölbreytt dagskrá verður að vanda í Borgarskjalasafn á menningarnótt laugardaginn 23. ágúst 2014.

Safnið verður með opið hús kl. 13.00 til 18.00 að þessu sinni. Sýning er um skíðamennsku og ferðamál, einföld getraun og börnum boðið upp á að föndra og lita, meðal annars að gera kórónur og grímur undir leiðsögn. Leiðbeinandi í kórónu og grímugerð kl. 15.00-17.00 er Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður og safnið býður upp á föndurefni. Starfsmenn verða á staðnum og svara spurningum um Borgarskjalasafn og starfsemi þess.

Borgarskjalasafn verður með sýningu um baráttu fyrir einkaleyfi á skíðabindingum, um ferðamennsku og sólarlandaferðir. Meðal annars eru sýnd frumskjöl úr einkaskjalasafni Ingólfs Guðbrandssonar og Jóns Helgasonar.

Borgarskjalasafn býður börnum á öllum aldri upp á að gera kórónur og/eða grímur kl. 15.00-17.00. Leiðbeinandi er Kristín Arngrímsdóttir myndlistarmaður og safnið býður upp á föndurefni. Hægt er að koma við hvenær sem er á þessu tímabili og prufa sig áfram í kórónu eða grímugerð.

Aðgangur ókeypis - allir velkomnir. 

Left