Has been reviewed?
Já
Has inline images?
Nei
Image
MIME Type
image/jpeg
File Size
99590bytes
Width
1111px
Height
708px
Föstudaginn 25. mars nk. mun Þjóðskjalasafn Íslands í samstarfi við Félag um skjalastjórn standa fyrir ráðstefnunni Horft til framtíðar - varðveisla og aðgengi upplýsinga. Ráðstefnan verður á Grand hótel í Reykjavík og stendur frá kl. 13-16. Sérstakur gestafyrirlesari verður Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur. Dagskrá ráðstefnunnar er hér fyrir neðan. Upplýsingar um skráningu og ráðstefnugjald má finna á vef Félags um skjalastjórn.
| 12:30 | Móttaka ráðstefnugesta |
| 13:00 | Sólveig Magnúsdóttir, formaður Félags um skjalastjórn setur ráðstefnuna |
| 13:05 | Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur. „Archives and Record Management - a Danish Perspective“. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku |
| 14:05 | Unnur Birna Karlsdóttir, skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands. „Varðveisla og grisjun. Reglur, framkvæmd og framtíðarsýn“. |
| 14:45 | Kaffihlé (kaffi og meðlæti innifalið í ráðstefnugjaldi) |
| 15:05 | Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands. „Upplýsingaréttur almennings og skylda stjórnvalda til að varðveita gögn með aðgengilegum hætti“. |
| 15:55 | Ráðstefnuslit |
Fundarstjóri er Ásdís Paulsdóttir
Left