Has been reviewed?
Has inline images?
Nei
Image
MIME Type
image/jpeg
File Size
62075bytes
Width
320px
Height
240px
Date of photo
Fri, 10/02/2020 - 11:20

Í gærkvöldi 19. mars 2013 lagði mennta- og menningarmálaráðherra fram á Alþingi frumvarp um opinber skjalasöfn. Frumvarpið tekur til starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands og þeirra tuttugu héraðsskjalsafna sem starfa á landinu. Hægt er að fylgjast með ferli málsins á heimasíðu Alþingis.

Frumvarpið sem hefur verið í vinnslu frá 2008 mun hafa í för með sér miklar breytingar á starfsumhverfi skjalasafna ef það verður að lögum.

Helstu breytingar núgildandi lögum um Þjóðskjalasafn Íslands eru:

  • Ítarlegri ákvæði um upplýsingarétt almennings, aðila máls og fræðimanna.
  • Í frumvarpinu eru ákvæði um aðgang að skjölum 30 ára og eldri hvort sem þau eru varðveitt á opinberum skjalasöfnum eða hjá stofnunum.
  • Frumvarpið tekur bæði til rafrænna skjala og hefðbundinna skjalaforma, gagnagrunna og skráa.
  • Ráðherra fer með yfirstjórn opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar samkvæmt lögunum og Þjóðskjalasafn Íslands verður ráðherra til aðstoðar við stjórn málaflokksins.
  • Stjórnarnefnd verður eingöngu þjóðskjalaverði til ráðgjafar. Starfsmenn Þjóðskjalasafns verða með fulltrúa en Félag héraðsskjalavarða fær hvorki fulltrúa né að sitja fundi stjórnar.
  • Ný ákvæði um umgjörð héraðskjalasafna og eftirlit með starfsemi þeirra.
  • Þjóðskjalasafn Íslands og héraðsskjalasöfn verða skilgreind saman sem opinber skjalasöfn. Þau hafi sameiginlegt hlutverk og skyldur.
  • Skerpt er á því hvaða aðilar eru afhendingarskyldir til opinberra skjalasafna. Allir lögaðilar sem eru að 51% hluta eða meira í eigu opinberra aðila verða afhendingarskyldir, í stað 50% samkvæmt gildandi lögum. Þetta hlutfall er í samræmi við núgildandi upplýsingalög.
  • Lögin gilda ekki lengur um Alþingi eða stofnanir þess, nema annað sé tilgreint í lögum.
  • Breytingar á ákvæðum um skjalastjórn og skjalavörslu afhendingarskyldra aðila, skýrar liggur fyrir hver beri ábyrgð á skjalastjórn og skjalavörslu viðkomandi aðila, í hverju meginskyldurnar eru fólgnar og hvaða viðurlög liggja við ef reglurnar eru brotnar.
  • Ný ákvæði sem fylgja ber við afgreiðslu á erindum um aðgang að skjölum í opinberum skjalasöfnum.
  • Úrskurðarnefnd um upplýsingamál skeri úr málum þar sem upp kemur ágreiningur um aðgang að skjölum í opinberum skjalasöfnum.

Eins og áður kom fram verða ítarlegri ákvæði um stofnun og rekstur héraðsskjalasafna og einnig aukið eftirlit með starfsemi þeirra. Meðal annars kemur fram:

 Þjóðskjalasafn Íslands hefur eftirlit með að héraðsskjalasöfn starfi í samræmi við lög. Rekstraraðilar héraðsskjalasafns skulu árlega skila Þjóðskjalasafni skýrslu um starfsemina og láta því í té aðrar þær upplýsingar og skriflegar skýringar sem óskað er eftir og þörf er á vegna eftirlits með því að skilyrði rekstrarleyfis séu uppfyllt. Lögbundin þagnarskylda stendur ekki í vegi slíkrar upplýsingagjafar.

Ef ástæða er til skal Þjóðskjalasafni Íslands heimill aðgangur að starfsstöðvum héraðsskjalasafna til athugana í þágu eftirlits samkvæmt lögum þessum. Skulu starfsmenn héraðsskjalasafna láta safninu í té nauðsynlega aðstoð af því tilefni ef óskað er.

 Ekki hefur verið tilkynnt hvenær ráðherra muni tala fyrir frumvarpinu.

Left