Has been reviewed?
Has inline images?
Nei
Image
MIME Type
image/jpeg
File Size
900461bytes
Width
3008px
Height
1483px
Date of photo
Fri, 10/02/2020 - 11:20

Skv. könnun sem Borgarskjalasafn gerði á síðasta ári meðal afhendingarskyldra aðila er mikill áhugi á fræðslu um skjalastjórn og skjalavörslu.

Til að bregðast við því býður Borgarskjalasafn  aðilum sem eru afhendingarskyldir til safnsins upp á tvö  örnámskeið í skjalavörslu á næstu tveimur vikum, þar sem áherslan er á ákveðin viðfangsefni sem starfsmenn safnsins fá oft spurningar um. 

Skráning fer fram í gegnum netfang safnsins: 

Geta þarf upp fullt nafn, netfang og starfsstöð og á hvort námskeiðið viðkomandi vilji skrá sig.

Ekkert skráningargjald er á þessi tvö námskeið. Hámarksfjöldi er á bæði námskeiðin og því borgar að skrá sig sem fyrst.

Skjöl – Hvernig skal skila?

Frágangur og afhending skjala á pappírsformi

Leiðbeinendur: Andrés Erlingsson og Svanhildur Bogadóttir, Borgarskjalasafni Reykjavíkur

Staðsetning: Fundarsalur Borgarskjalasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 3. hæð

Dagsetning:   21. nóv.2018 kl. 09.00-10.00

Lýsing:

Á námskeiðinu er farið yfir helstu lög og reglur sem gilda um frágang og afhendingu skjala á pappírsformi, hvaða upplýsingar þurfa að fylgja beiðni um afhendingu og hvernig sótt er um hana. Farið verður yfir:

  • ferlið við skráningu á skjölum sem skila skal skv. reglum um skjalasöfn sveitarfélaga,
  • eyðublöð sem skal nota og spurningum svarað varðandi:
  • Hverju skal skila
  • Upplýsingar um stofnun
  • Málaflokkar
  • Geymsluskrá
  • Beiðni um afhendingu
  • Framkvæmd afhendingar

Skjöl – Hverju má henda?

Reglur og verklag um grisjun skjala.

LeiðbeinendurSvanhildur Bogadóttir og Andrés Erlingsson, Borgarskjalasafni Reykjavíkur

StaðsetningFundarsalur Borgarskjalasafns, Tryggvagötu 15, 3. hæð

Dagsetning: 28. nóv. 2018 kl. 11.00-12.00

Lýsing

Á námskeiðinu er farið yfir helstu lög og reglur sem gilda um grisjun, hverju má eyða, hverjar eru heimildir til grisjunar og hvernig sótt er um grisjunarheimildir. Farið verður yfir ferlið við skráningu á skjölum sem grisjuð eru skv. reglum um grisjun í skjalasöfnum sveitarfélaga, eyðublöð sem skal nota og spurningum svarað varðandi:

  • Skjalavistunaráætlanir
  • Hvaða skjöl er heimilt að grisja
  • Fylgiskjöl bókhalds og undirgögn bókhalds
  • Skráning grisjunarskjala
  • Meðferð útgefins efnis frá öðrum aðilum
  • Afrit og endurrit
  • Aðsendar kynningar  
  • Önnur skjöl
Left