Has been reviewed?
Has inline images?
Nei
Image
MIME Type
image/jpeg
File Size
1960495bytes
Width
5312px
Height
2988px
Date of photo
Fri, 10/02/2020 - 11:20

Borgarskjalasafn verður lokað að þessu sinni á menningarnótt en safnið verður þó með tvær sýningar í stigagangi Grófarhúss Tryggvagötu 15 á menningarnótt.

Á þriðju hæð Grófarhúss er sýning á skjölum og ljósmyndum sem tengjast tómstundastarfi í félagsmiðstöðvunum í Breiðholti, einkum Fellahelli og Miðbergi. 

Borgarskjalasafn varðveitir skjalasöfn félagsmiðstöðva í Reykjavík.

Á fjórðu hæð Grófarhúss er sýning á skjölum sem tengjast ættfræðirannsóknum Íslendinga meðal annars af ættartölum frá árunum 1872 til 2013. 

Ættartölur berast stundum með einkaskjalasöfnum einstaklinga á Borgarskjalasafn og er mikill áhugi fyrir þeim.

Sýningarnar eru opnar menningarnótt laugardaginn 19. ágúst 2017 kl. 12-22 og sunnudaginn 20. ágúst kl. 12-18. Allir velkomnir og það kostar ekkert. 

Left