Guðmundur Kristjánsson (1902-1994)
Guðmundur Kristjánsson (1902-1994) - Askja 1
Bréf frá Guðmundi til Kristínar Agnesar Helgadóttur móðursystur hans og Sigríðar Gísladóttur frá Ytra-Skógarnesi.
Bréf frá Kristínu Helgadóttur bróðurdóttur Guðmundar(sjá einkaskjalasafn nr. 160).
Bréf sem tengist búsetu Guðmundar á Siglufirði og sýningu á verkum hans þar.
Smásögur óútgefnar eftir Guðmund skrifaðar á árum 1975-1990.
Frásögn af síldveiðum við Norður-Íshaf 1903 ásamt mynd.
Ljósmyndir, uppskrift af brauði.
Kort með ljósmynd af málverki Guðmundar sem hann málaði 1988 samkvæmt sagnfræðilegri heimild frá 1903 um komu Norðmanna til Íslands í júlí 1903.
Sýningarskrá frá sýningu Guðmundar í Hafnarborg 1990.
Ljósrit af sýningarskrá frá sýningu til minningar um Guðmund í Bræðsluhúsi Síldarminjasafnsins á Siglufirði sem kölluð var „Vinur lífsins“.
Grafskrift vegna útfarar Guðmundar frá Fossvogskirkju 21. október 1994.
Blaðaúrklippur :
Um gjöf Guðmundar til Barnaskólans á Siglufirði sem var ljóslækningalampi, stólar o.fl. (1942).
Viðtal í tilefni af 70 ára afmæli Guðmundar í Morgunblaðinu 18.júlí.1972.
Minningagreinar í Morgunblaðinu 21.okt.1994.
„Minnst með sýningu” 19. júlí 2002.
Útprentun á grein í Morgunblaðinu 18. ágúst 2002.
Guðmundur Kristjánsson (1902-1994) - Askja 2
Bréf frá Guðmundi til Kristínar Helgadóttur (E-121) og Kristínar Jónsdóttur (E-160) og frá þeim til Guðmundar.
Skráð: Elín Þórðardóttir, ágúst 2007