4
Dagbækur Helga Hafliðasonar:
Dagbækurnar (alls 5) eru frá árunum 1948-1950 nema ein sem er mun yngri og án ártals.
Helgi Hafliðason – Ýmis persónugögn:
Hjúskaparvottorð frá 12. ágúst 1959 vegna hjónabands Helga og Guðmundínu þann 26. desember 1953.
Símskeyti frá Jóni Bárðarsyni + Guðríði og Baldri Steinbach í tilefni brúðkaups Helga 1953.
Bankakort, skilríki o.fl.: Visa kort í KB-banka. Tvö ökuskírteini – frá 2000 og 2006. Tvö vegabréf – frá 4. nóvember 1992 og 12. september 2002, sparisjóðsbók í Iðnaðarbanka Íslands frá 10. júlí 1972.
Félagsskírteini: Málarameistarafélagið – gildir 1.10.2004 – 1.10.2006. Skírteini sem vottar að Helgi varð félagi í unglingastúkunni „Bylgja” No. 87 þann 13. janúar 1929.
Skjöl tengd Alþýðuflokki: Boðskort á nýársfagnað 5. janúar 1962. Dagskrá fyrir árshátíð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík 1981. Borði með áletruninni „X A-listinn”.
Skeyti og kort í tilefni fermingar Helga Hafliðasonar þann 1. nóvember 1936:
Meðal annars kveðja frá Skógarmönnum KFUM. Mörg kortin skrautrituð.
Afmæliskveðjur, kort og símskeyti vegna stórafmæla frá árunum 1953-2002:
Hér í m.a. ljóð um Helga Hafliðason eftir Sig. Jónsson tannlækni í tilefni áttræðisafmælis Helga, skeyti frá stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur, kort frá Jóni Baldvini Hannibalssyni og Bryndísi, sundhallarvinum og barnabörnum Helga (handgert) - o.fl.
Handskrifuð rímnabók merkt Hafliða Baldvinssyni:
Formannaríma – Af Bolungarvíkur – Mölum haustið 1909. Eftir Þórð Þ. Grunnvíking.
Formannavísur úr Bolungarvík árið 1904. Eftir Gísla Jónsson (skálda).
Formannavísa um Bárð Magnússon. Eftir Gísla Jónsson.
Ljóð, vísur, stökur og söngskrár:
Hér í m.a. ljóð tileinkuð Helga Hafliðasyni eftir B.M.B. og Steingrím Kristjónsson. Ljóð tileinkað Hönnu eftir Ottó Marteinsson 16/3 1977. Ljóð Hannesar Guðmundssonar tileinkað Ástu Hafliðadóttur níu ára frá 5. ágúst 1935 + ýmiss samtíningur ljóða o.þ.h.
Prentaðar ljóðaskrár: “Kosningahríðin. Gamanvísur eftir Plausor II”, Rvík 1921. Söngskrá frá Fóstbræðrum (án ártals). Söngskrá Söngfélags verkalýðssamtakanna í Reykjavík frá 1. maí 1950.
Ættartala Hafliða Baldvinssonar:
Ein fjölrituð skrá og tvær handskrifaðar.
Ættartöluupplýsingar, útfararskrár o.fl.:
Ýmis gögn og handskrifaður samtíningur um einstaklinga. M.a. nöfn þeirra sem sendu blóm eða minningarkort í tilefni af andláti „Vinu” 23. júlí 1991. Útfararskrár fyrir Ástríði Hafliðadóttur (1926-2008) og Sigrúnu Kristínu Baldvinsdóttur (1878-1943). Andlátsfrétt um Baldvin Jónsson frá 10/9 1996.
Jón Baldvinsson 20. desember 1882 – 17. marz 1938. Minning:
Hér í einnig ljóð Sigurðar Einarssonar um Jón og fróðleikur um Jón af vefnum www.gardur.is.