Skrá yfir úthlutun Húsverndunarsjóð Reykjavíkur árið 2000:
Hús utan flokka, innan svæðis:
Ingólfsstræti 18.
Framnesvegur 8.
Hús utan flokka, utan svæðis:
Blönduhlíð 27.
Tómasarhagi 55.
Austurnes, við Skildingarnes.
Bólstaðarhlíð 7.
Ljósgulur flokkur/verndun byggðamynsturs:
Kárastígur 9a.
Laugavegur 58.
Bergstaðarstræti 34.
Blár flokkur:
Bræðraborgarstígur 8.
Nýlendugata 13.
Nýlendugata 24.
Spítalastígur 5.
Bergstaðastræti 25b.
Unnarstígur 2.
Grettisgata 27.
Grundarstígur 15b.
Tryggvagata 12.
Brekkustígur 7.
Bræðraborgarstígur 20.
Tjarnargata 18.
Austurstræti 20.
Milligulur flokkur/verndun svæða:
Vesturgata 3, Hlaðvarpinn.
Laufásvegur 54.
Öldugata 32.
Mjóstræti 2.
Garðastræti 25.
Fjölnisvegur 12.
Fischersund 3.
Laufásvegur 34.
Grjótagata 12.
Vesturgata 5a.
Dökkgulur flokkur/verndun götumynda:
Vesturgata 4.
Veltusund 3b.
Þingholtsstræti 33.
Ingólfsstræti 10.
Grænn flokkur/verndun 20. aldar bygginga:
Skólavörðustígur 28.
Hávallagata 41.
Rauður flokkur/tillögur að friðun:
Laugavegur 46.
Tómasarhagi 16b.
Miðstræti 8b.
Bergstaðastræti 21.
Bergstaðastræti 22.
Bankastræti 3.
Miðstræti 6.
Lækjargata 6b.
Miðstræti 8a.
Unuhús, Garðastræti 15.
Stölakot, Bókhlöðustígur 6.
Garðar við Ægisíðu.
Stýrimannastígur 10.
Laufásvegur 43.
Húsverndarsjóður Reykjavíkur
Árið 1987 var Húsverndarsjóður Reykjavíkur stofnaður til að veita lán til endurbyggingar gamalla húsa með varðveislugildi. Tíu árum síðar, árið 1997 var honum breytt í styrktarsjóð. Hlutverkið er að veita styrki til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum mannvirkjum í Reykjavík, sem sérstakt varðveislugildi hefur af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Enda séu framkvæmdir í samræmi við upprunalegan byggingarstíl húss og í samræmi við sjónarmið minjavörslu.
Samkvæmt reglum sjóðsins á að auglýsa eftir umsóknum um styrk í sjóðinn fyrir 15. janúar ár hvert. Meðan á umsóknarfresti stendur liggja eyðublöð frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs og á Árbæjarsafni.
Ráðstöfunarfé sjóðsins er ákveðið í fjárhagsáætlun borgarsjóðs ár hvert. Sjóðsstjórn skipa tveir fulltrúar úr skipulags- og byggingarnefnd, aðrir tveir frá embætti skipulags- og byggingarsviðs og einum frá embætti borgarminjavarðar. Annar fulltrúi skipulags- og byggingarsviðs skal annast eftirlit með framkvæmdum, sem styrktar eru úr sjóðnum.
Við úthlutanir úr sjóðnum er lögð sérstök áhersla á á styrkveitingar til framkvæmda sem miða að því að færa ytra byrði húsa til upprunalegs horfs. Að jafnaði eru ekki veittir styrkir til framkvæmda sem teljast eðlilegt viðhalds.
Sjá nánar: http://skipbygg.is/displayer.asp?cat_id=560