Has been reviewed?
Nei
Content paragraphs

Bréfa- og málasafn Benedikts Sveinssonar 1895-1945.

Bréf o.fl.til og frá Benedikt og Guðrúnu, móður Benedikts, bræðrum hans og uppeldissystur.

Einnig börnum þeirra Sveini, Pétri, Bjarna, Ólöfu og Guðrúnu.

Örk 1

Bréf til Benedikts: Bréfritari Kristjana Guðný Sigurðardóttir móðir hans, apríl 1896 til desember 1903.

Bréf til Benedikts: Bréfritarar Kristjana, Þórður og Fjóla, 23. til 25. nóvember 1895.

Bréf til Benedikts: Bréfritari líklega Fjóla Stefánsdóttir uppeldissystir hans, 27. febrúar 1923

Örk 2

Bréf til Benedikts: Bréfritari Þórður Sveinsson bróðir hans, mars 1897 til janúar 1937.

Bréfabók til Benedikts. Bréfritari Þórður bróðir hans, 21. til 27. desember 1895.

Örk 3

Bréf til Benedikts: Bréfritari Baldur Sveinsson bróðir hans, september 1900 til október 1911

Bréfabók til Benedikts: Bréfritari Baldur bróðir hans, 3. maí 1898.

Örk 4

Bréf til Benedikts og Guðrúnar: Bréfritari Pétur sonur þeirra, ágúst 1918 til júlí 1936.

Örk 5

Bréf til Benedikts og Guðrúnar: Bréfritari Bjarni sonur þeirra, júlí 1921 til júní 1932.

Þar er einnig bréf frá Bjarna til Ólafar og Guðrúnar systra hans, 2. maí 1932.

Örk 6

Bréf til Benedikts: Bréfritari Sveinn sonur hans, ágúst 1921 til ágúst 1925.

Bréf til Benedikts og Guðrúnar: Bréfritari Guðrún dóttir þeirra, júlí og ágúst 1945.

Bréf til Benedikts og Guðrúnar: Bréfritari Ólöf dóttir þeirra, 9. júní 1940.

Örk 7

Bréf o.fl. frá Benedikt, handskrifað og ljósrit, febrúar 1901 til júní 1940.