Nói Kristjánsson, tónskáld og Anna Ágústsdóttir
Nói Kristjánsson, tónskáld og Anna Ágústsdóttir - Askja 1
Aldarminning um Nóa Kristjánsson, ljósrit; minningargrein um Önnu G.J. Ágústsdóttur frá Höskuldarkoti.
Tónaregn, 30 lög fyrir blandaðan kór eftir Nóa Kristjánsson, Reykjavík 1953.
Ljóð Nóa Kristjánssonar, úr Ljóðum Rangæinga, ljósrit.
Íslands Hrafnistumenn, texti eftir Magnús Stefánsson, lag Nóa Kristjánssonar, nótur, ljósrit.
Hallgrímskirkja í Reykjavík: Hátt skal huga lyfta, ljóð Guðrúnar Jóhannsdóttur
frá Brautarholti, lag Nóa Kristjánssonar, bæklingur.
Heiðursfélagaskjal Kvenfélags Hallgrímskirkju til handa Önnu Ágústsdóttur 1942-1977, ljósrit.
Frá byggðasafni Suðurnesja, Vatnsnesi, ljósrit úr tímariti er sýnir ljósmynd af gínu í upphlut ásamt tilheyrandi skarti og möttli: sparibúningur Önnu Ágústsdóttur, en hún hafði mælt svo fyrir að upphluturinn skyldi ganga til safnsins. Theodór færði safninu jafnframt ljóðabók afa síns, Ágústs Jónssonar, Áfanga, og ýmsa muni úr eigu foreldra sinna.
Þrjú albúm með minningarkortum um Nóa Kristjánsson sem andaðist 21. nóvember 1966.
Albúm með minningarkortum um Nóa og Guðleifu dóttur hans, sem andaðist 6. desember 1966, ásamt minningargreinum.
Albúm með minningarkortum vegna andláts Önnu Ágústsdóttur sem andaðist 7. júní 1980.
Albúm úr plasti sem inniheldur heillaskeyti til Nóa á sjötugsafmæli hans, þ.m.t. skeyti teiknað af Steindóri Björnssyni frá Gröf í tilefni sjötugs afmælis Nóa; geymir skeytið einnig texta á bakhlið. Einnig er þarna að finna fjölda skeyta send Önnu vegna sjötugsafmælis hennar, gjafaspjöld og úrklippa úr dagblaði fylgja einnig: Anna Ágústsdóttir 70 ára ásamt ljósmynd.
Nói Kristjánsson, tónskáld og Anna Ágústsdóttir - Askja 2
Mappa úr pappa með heillaskeytum af ýmsu tilefni, flest vegna sextugsafmælis Nóa Kristjánssonar 14. janúar 1954.
Mappa úr plasti með heillaskeytum, einkum til Önnu Ágústdóttur á fimmtugsafmæli hennar.
Mappa úr plasti með heillaskeytum til Önnu Ágústsdóttur á áttræðisafmæli hennar.
Frú Anna Ágústsdóttir hefur verið kjörin heiðursfélagi Kvenfélags Hallgrímskirkju í virðingar og þakkarskyni, 1942 8/3 1977. Lydía Pálmarsdóttir, skrautritað heiðursskjal.
Frumrit nótna eftir Ársæl Guðjón Ágústsson við eftirfarandi kvæði:
Hve fagurt ljómar ljósa her eftir Valdimar Briem, 1932.
Ísland eftir Ágúst Jónsson,1917.
Bænavers eftir Ágúst Jónsson, 1905.
(Ársæll Guðjón Ágústsson (1891-1955) var frá Höskuldarkoti í Njarðvíkum og bróðir Önnu Ágústsdóttur. Hann flutti til Vesturheims árið 1912 ásamt eiginkonu sinni Arndísi Árnadóttur frá Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd. Gefanda, Theodóri Nóasyni, er ekki kunnugt að þau hjón hafi komið til Íslands nema árið 1937. Hann veit heldur ekki til að lög Ársæls hafi verið spiluð á Íslandi utan æskuheimilis hans. Heimild: Theodór Nóason í bréfi til Borgarskjalasafns 11. febrúar 2004.)
Jólakveðjur 1958,1959,1960, 1965 og 1967: Barnabæn um áramót, Minning um söng Eybjargar og Gunnars, Handleiðsla Guðs, Betlehemsstjarnan, Reykjavík nótur og söngtexti. Þessar kveðjur eru allar frá Steindóri Bjarnasyni.
Skráð: Ragnhildur Bragadóttir, Njörður Sigurðsson, Elín Þórðardóttir